Vei ungum mönnum sem vita og mega allt

Tilþrifin hjá Sigmundi Davíð og þeim einsleita hópi ungra manna (og fáeinna kvenna í Framsókn og Sjálfstæðisflokki) sem hafa sem hæst í andstöðu sinni við Icesavesamninginn minna mig á álíka einsleitan hóp sem kallast úrtásarvíkingar. Fyrir nokkrum árum voru það þeir sem allt vissu og allt máttu. Við hin fengum hlutverkið að dáðst að þeim eða þegja ella. Núna þegar við upplifum álíka hóp á ný bið ég yfirvegaðra og skynsamara fólk um að láta í sér heyra, vara fólk við því að gleypa við svona óöguðum bessevisserum því þeir hafa kostað okkur nóg.

Sigmundur Davíð og vinir, nú er komið nóg af bulli og rugli. Snúið ykkur að því að greina hvers vegna fór sem fór og hver ber ábyrgðina á því.   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Bárðarson

Hann er að slá út Birgi Ármannsson í leikrænum tilþrifum. Hélt að enginn gæti toppað hann.

Finnur Bárðarson, 2.7.2009 kl. 17:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband