14.7.2009 | 09:06
Er þetta álit Seðlabankans?
Skrítið mál, mér hefur alltaf skilist að fólk úr Seðlabankanum hefði setið í samninganefndinni og tekið fullan þátt í samningagerðinni. Val ekkert samráð við Seðlabankann?
Hvað heita þessir lögfræðingar og eru þeir t.d. í einhverjum sjórnmálaflokki? Því hefur þetta álit Seðlabankans ekki komið fram fyrr? Hver er skoðun annarra á samningnum t.d. sérfræðinga háskólanna?
Það verður nú aldeilis spennandi að sjá blaðamenn Morgunblaðsins fjalla um þetta mál á málefnalegan og gagnrýninn hátt núna þegar í ljós hefur komið að þeir tala ekki fyrir Seðlabankann?
Seðlabanki gagnrýnir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæl Unnur
ég lít á þennan áfellisdóm þessara lögfræðinga í Seðlabankanum eftir lestur á þessari frétt. Sem hrikalegan áfellisdóm yfir stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og þá sérstaklega gagnrýni á störf þeirra Davíðs Oddssonar og Geirs Haarde. Núverandi stjórnvöld og bráðabirgðastjórnin hefur ekki enn skuldbundið þjóðina á neinn hátt eða gert neina þá hluti sem hafa áhrif á efnahag þjóðarinnar sem slíkrar.
kveðjaKristbjörn Árnason, 14.7.2009 kl. 09:28
Mér finnst alveg skelfilegt að hlusta á fólk sem lætur eins og þetta sé allt Jóhönnu að kenna.
Minni margra nær ekki langt til baka.
Ingibjörg (IP-tala skráð) 14.7.2009 kl. 23:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.